...fluttur á olinjall.blog.is
Posted at 02:12 am by olinjall
Biscantengill
Fyrir nokkrum dögum las ég, hlustaði og sá fréttir um eldflaugar Hizbollah á nokkrum íslenskum miðlum. Allir voru þeir uppfullir af því að Ísraelar hefðu grandað einni langdrægri, (gott ef hún var ekki frá Íran svona til að undirstrika hvað hún var vond). Með slíkum skrifum undirstrikuðu fréttamenn fávisku sína á eldflaugamálum. Allavega þætti mér fróðlegt að sjá Hizbollahmenn burðast með langdræga eldflaug á bakinu eða bauka við hana í húsasundi í Beirút. Fyrir þá sem ekki skilja málið má til gamans geta að nýjasta langdræga eldflaug norður Kóreumanna er 36 metrar á lengd og eitthvað um 80 tonn á þyngd.
Í vikunni heyrði ég frétt um hinn áttræða Fidel Castro. Allir eiga að vita að kallinn er 79 ára.
Leiknir heldur áfram að tapa leikjum, nú gegn KA. Við höfum unnið einn leik af síðustu 8 í deild. Það er ekki góð tölfræði. Á sama tíma sendum við frá okkur góða leikmenn og notum lélega leikmenn í staðinn. Það er ofar mínum skilningi.
Pensilínið mitt er að þrusuvirka, ég get talað án áreynslu aftur. Á móti hef ég ekki tekið ofnæmistöflurnar í tvo daga og er strax kominn með hor á ný.
Posted at 09:20 am by olinjall
Biscantengill
Sonur minn tók þá pólitísku ákvörðun í gær að hann væri aftur byrjaður að ganga án þess að halda sér í. Merkilegur náungi. Annars er allt gott af honum að frétta og mér sýnist hann vera að fitna. Held að það sé matarræðinu hjá múttu að þakka en gemlingurinn hefur dvalið að mestu hjá ömmu sinni og afa síðustu vikuna. Einu fréttirnar sem ég fæ af honum eru að hann sé að froðsa í kleinum og kanilsnúðum.
Leiknismenn fengu stig á Ólafsvík í kvöld. Það er nú kærkominn tilbreyting eftir endalausa tapleiki að undanförnu. Jakob Spangsberg er snúinn aftur í holtið breiða og því má búast við að liðið nái að innbyrða nokkur stig á næstunni. Okkur vantar 4-6 stig til að tryggja okkur í deildinni. Fjandinn hafi það ef 6 leikir duga ekki til þess. Við erum með alltof gott lið til að vera nálægt fallsætinu.
Hesturinn er farinn frá United til Madrid. Ég held að Ferguson sé orðinn gersamlega geggjaður. Merkheppnasta húsdýr heims þessi Hollendingur. Þetta er ámóta vitleysa og þegar Houllierffíflið seldi Fowler á sínum tíma.
Posted at 04:08 am by olinjall
Biscantengill
Eftir afrek laugardagsins, þar sem sonur minn gekk einn og óstuddur um gólfin á Kapló tók hann þá meðvituðu og upplýstu ákvörðun að heimskulegt væri að labba án þess að halda sér í á meðan. Blessunarlega á ég göngutúrinn góða á vídeó þannig að ég get sannað mál mitt um gönguafrek sonarins.
Ríkisskattstjóri gefur okkur hjónaleysunum pakka um mánaðarmótin. Ekki er hann þó voðalega hár. Kennaralaunin eru víst svo há að barnabætur eru skertar eins mikið og leyfilegt er að mér sýnist. Augljóslega verður Valur því að borða mikið af núðlum úr Bónus næsta árið.
Posted at 04:22 pm by olinjall
Biscantengill
já, sonurinn gengur og það ekki 10 mánaða gamall.
Posted at 04:19 pm by olinjall
Biscantengill
Lélegasti fréttatími sögunnar
Ég held að sjö tíminn í morgun sé verst lesni tími á ferli mínum sem næturfréttamaður. Ég tafsaði á öðru hverju orði. úffpúff...
Posted at 08:07 am by olinjall
Biscantengill
Sunna heimtaði að ég bloggaði hér í nótt. Nú hef ég setið fyrir framan skjáinn í lengri tíma og dettur ekkert í hug til að segja.
En ég bloggaði þó allavega.
Posted at 07:51 am by olinjall
Biscantengill
Hingað hringdi maður áðan og var ekki sáttur við að þau væru aftur byrjuð að stela frá sér. Þau hefðu gert það áður og væru byrjuð aftur. Að lokum sagði hann að honum hefði þótt nauðsynlegt að koma þessu áleiðis og bauð góða nótt. Ég fékk engar frekari upplýsingar um málið. Kannski "þau" séu sama liðið og gerði nágrannakonu mína það tryllta um daginn að hún galaði "þjófar, morðingjar" úti á stigagangi um miðja nótt.
Helvítis sjálfvirki spilaralistinn er bilaður hérna á rúv í nótt. Mér tekst ekki að koma tölvudraslinu í gang og verð því að leika plötusnúð í hjáverkum. Fann alveg yndislegan disk sem meðal annars innihélt Mandy með Barry Manilow. Lét síðan diskinn rúlla. Ég held að það styttist í annað hvort Herbert Guðmundsson eða Roxette. Allavega eitthvað eðalpopp.
Sonur minn kúkaði í baðið í kvöld. Það er voða sniðugt að hans mati en sama leik lék hann í gær. Þá var ég einn heima og voða panic þegar veiða þurfti strák upp úr íkúkuðu vatninu. Það tókst reyndar ágætlega. Þreif hann aðeins og þerraði og lét hann á gólfið meðan ég veiddi kúkinn úr baðinu og þreif baðendur. Á meðan skeit Valur á gólfmottuna á baðinu. Þá var mér ekki skemmt.
Af Val er annars að frétta að hann fékkst til að borða kjöt í kvöld. Grillað svínakjöt með remúlaði. Já, hljómar vissulega ekki vel en remúlaðið var neyðarúrræði. Og meðan það virkar skal það brúkað. Ætli það verði ekki fiskur með remúlaði á morgun í kvöldmatinn.
Leiknir vann góðan sigur á Fjölni á mánudag. Ég var á vellinum og skemmti mér konunglega. Pétur Svans er nú markahæsti maður 1.deildar með 6 mörk í 8 leikjum. Ekki amalegt hjá kantmanni.
Posted at 04:18 am by olinjall
Biscantengill
Ég er kominn með hægrislagsíðu, áttaði mig á þessu bara rétt áðan. En í hverju skyldi þetta nú felast. Jú, kvaki, það er gera svona andahljóð með því að fylla kinnina af lofti og setja smá þrýsting á hana og hleypa því svo út þannig að maður hljómar eins og önd. Þetta get ég bara með hægri kinninni. En eins og þetta sé ekki nóg þá var ég áðan að vinda upp á tunguna á mér. Ég get bara gert það til hægri. Þetta er hrikalegt ástand, kannski það þurfi að senda mig í endurhæfingu eða iðjuþjálfun.
Posted at 09:18 am by olinjall
Biscantengill
Isabelle Dinoire, þrjátíu og átta ára gömul frönsk kona varð fyrsti andlitsþegi heims í lok nóvember en hún missti andlitið þegar hundur hennar réðst á hana í svefni. (úr fréttum ríkisútvarpsins, 4.7.06 kl. 5)
Já, íslenskan er skemmtilegt mál.
Posted at 03:23 am by olinjall
Biscantengill