GUÐ
Meistarinn í góðum gír!

<< August 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

Nokkrir svalir tenglar:
Sunna sæta
Fimmtudagur
Eva
Hr. Mombasa
Frú Mombasa
Krulluhaus
Næstum doktor
Kolla á bláa hjólinu
Stefán Einar
Benedikt XVI




rss feed

Thursday, August 03, 2006
Um heimsku

Fyrir nokkrum dögum las ég, hlustaði og sá fréttir um eldflaugar Hizbollah á nokkrum íslenskum miðlum. Allir voru þeir uppfullir af því að Ísraelar hefðu grandað einni langdrægri, (gott ef hún var ekki frá Íran svona til að undirstrika hvað hún var vond). Með slíkum skrifum undirstrikuðu fréttamenn fávisku sína á eldflaugamálum. Allavega þætti mér fróðlegt að sjá Hizbollahmenn burðast með langdræga eldflaug á bakinu eða bauka við hana í húsasundi í Beirút. Fyrir þá sem ekki skilja málið má til gamans geta að nýjasta langdræga eldflaug norður Kóreumanna er 36 metrar á lengd og eitthvað um 80 tonn á þyngd.

Í vikunni heyrði ég frétt um hinn áttræða Fidel Castro. Allir eiga að vita að kallinn er 79 ára.

Leiknir heldur áfram að tapa leikjum, nú gegn KA. Við höfum unnið einn leik af síðustu 8 í deild. Það er ekki góð tölfræði. Á sama tíma sendum við frá okkur góða leikmenn og notum lélega leikmenn í staðinn. Það er ofar mínum skilningi.

Pensilínið mitt er að þrusuvirka, ég get talað án áreynslu aftur. Á móti hef ég ekki tekið ofnæmistöflurnar í tvo daga og er strax kominn með hor á ný.


Posted at 09:20 am by olinjall

Björn æ og Ó.
October 7, 2006   01:51 AM PDT
 
HALLÓ HALLÓ HALLÓ
HVAR er Óli?!?


Previous Entry

Next Entry