GUÐ
Meistarinn í góðum gír!

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30

Nokkrir svalir tenglar:
Sunna sæta
Fimmtudagur
Eva
Hr. Mombasa
Frú Mombasa
Krulluhaus
Næstum doktor
Kolla á bláa hjólinu
Stefán Einar
Benedikt XVI




rss feed

Wednesday, June 28, 2006
furðulegur geislaspilari

Ég áttaði mig á því fyrir skemmstu að ég kann ekkert á geislaspilarana hérna í stúdíói rásar 2. Þeir spila bara eitt lag fyrir mig og hætta svo. Ég þarf sárlega að læra hvernig á að neyða þá til að spila allan diskinn.

Í kvöld labbaði ég í vinnuna. Það er tæplega klukkustundar gangur úr vesturbænum og upp í Efstaleiti. Blessunarlega þarf ég ekki að labba aftur heim. Það er einhvern veginn miklu auðveldara að labba í vinnuna en úr henni.

Helvítis Frakkarnir komust áfram á kostnað minna manna frá Íberíuskaganum. Bömmer.


Posted at 06:28 am by olinjall
Biscan er bestur, eða hvað?

Monday, June 26, 2006
Veikindapésinn

Deginum í dag verður eytt heima með Val sem fær ekki að fara á leikskólann vegna flensu. Stráksi er sárlasinn með hor langt niður í lungu og rúmlega 38° hita. Það er vonandi að hann hristi þetta af sér hið snarasta en það verður samt farið með hann út á heilsugæslu á eftir. Svona til að láta hlusta hann aðeins og kíkja í eyrun.

Helgin var hin fínasta, kíktum í hólminn þar sem dvalið var í góðu yfirlæti og m.a. skroppið á Fimm fiska til að horfa á Podolski slátra Svíum. Þá náðum við einnig seinni hálfleik og framlengingu á Argentína vs. Mexíkó. Á sunnudeginum kíktum við í sund, Valur brosti út að eyrum allan tímann.

 


Posted at 09:51 am by olinjall
Biscan er bestur, eða hvað?

Friday, June 23, 2006
Kvöldvaktin

Sit hér einn í kofanum á kvöldvakt fréttastofunnar. Það markverðasta í kvöld er maðurinn sem hringdi til að kvarta yfir lélegum íþróttafréttamönnum. Þá hringdu tveir til að kvarta yfir Kastljósinu. Ekki veit ég af hverju þetta fólk hringir í fréttastofu ÚTVARPS út af því.

En meðan ég sit hér og sauma tapar Leiknir fyrir Haukum. Leikurinn er nú sennilega ´búinn núna en staðan er 2-5. Það er sorglegt. Ég er eiginlega ánægður með að hafa ekki verið á vellinum. Ég mun hins vegar mæta galvaskur á Valbjörninn í næstu viku þegar við mætum Þrótti. Það gæti orðið skemmtilegur leikur.

Ég ætla út úr bænum um helgina og eyði nótt í Stykkishólmi. Það verður í fyrsta skipti sem Valur kemur í heimsókn í sveitina hjá ömmu og afa. Sá verður eflaust kátur. Annars er helst af honum að frétta að hann borðaði sand í dag, miðað við útganginn á honum þegar ég sá hann er sandkassinn sennilega tómur núna.


Posted at 11:04 pm by olinjall
Biscan er bestur, eða hvað?

Tuesday, June 20, 2006
Baðið góða

Fyrr í kvöld ákvað ég að skella Val í bað enda var hann pirraður og fáar leiðir virka betur til að koma honum í gott skap en að skella stráksa í baðkarið.

Það má segja að Valur hafi ekki verið hrifinn af hugmyndinni. Hann gaf skít í baðið.

bókstaflega:(


Posted at 10:49 pm by olinjall
Biscan er bestur, eða hvað?

Sunday, June 18, 2006
Róninn minn

Í morgun fórum við feðgar niður að sækja fréttablaðið. Það var ekki ferð til fjár þar sem í anddyrinu hafði sauðdrukkinn sauður lagst til svefns. Lyktin af manninum fannst upp á 3. hæð. Kunni ekki við að vekja hann með Val í fanginu, auk þess sem ég hef engan áhuga á að vera í návígi við svona hyski, þannig að pólitíið fékk að koma og sækja kauða. Reyndar fór hann ekki langt því allnokkru síðar var hann enn í strætóskýlinu fyrir utan. Jamm, áfengi er vissulega böl.

Árni frændi varð sjötugur á föstudaginn (ath. titill bloggsins tengist honum þó ekkert) Við hjónaleysurnar mættum og skemmtum okkur ágætlega en yfirgáfum samkvæmið snemma enda meðalaldur gesta um 65 ár. Fórum á x-men. Það er sæmileg afþreying en nákvæmlega ekkert meira en það.

Í dag hefur svo verið rutt út draslinu úr herberginu hans Vals. Ég er svo duglegur.


Posted at 07:06 pm by olinjall
Biscan er bestur, eða hvað?

Tuesday, June 13, 2006
Næturfréttaritarinn kveður að sinni

Lærdómstörn hins unga og óreynda næturfréttamanns Útvarpsins er þá senn á enda. Ströng þjálfun að baki í hinum ýmsu fræðum, allt frá tæknihlið útsendinga á samtengdum rásum til þess að vera sálusorgari húsmæðra í miðbænum sem hafa áhyggjur af því að allur bílafloti slökkviliðsins hafi brunað framhjá heimili þeirra. Innan starfssvið næturfréttamanns er einnig að hugga þá áhorfendur sem ósáttir eru við málalyktir í framhaldsþáttum og kvikmyndum sem eru á dagskrá sjónvarpsins, flytja Jónasi Jónassyni kveðjur frá æstum, kátum aðdáendum og vaka yfir velferð þjóðarinnar.

Nú er komið að fríviku þar sem margt verður brallað með öðlingsdrengnum Val Ólasyni, sem nú er á góðri leið með að verða útlærður leikskólastrákur en aðlögun gengur enn sem komið er vonum framar. Já, hann kann að haga sér eins og pabbinn.

Ég er enn úti að aka í hm-glápi en ánægður með að Ástralir skuli hafa innbyrt þrjú stig gegn Japan í gær. Ég er meira með á nótunum í Roger Waters fræðum eftir að hafa verið viðstaddur góða tónleika kappans í Egilsumferðarteppuhöllinni í gær.


Posted at 08:04 am by olinjall
Biscan er bestur, eða hvað?

Monday, June 12, 2006
Glaður í bragði

Það er stuð og stemning á næturvaktinni í dag. Helsta ástæðan fyrir kæti minni er sigur Leiknismanna á Stjörnunni í Garðabæ í kvöld með tveimur mörkum gegn engu. Leiknir situr því í öðru sæti deildarinnar sem stendur sem þykir nokkuð gott hjá liði sem var spáð 9. sæti fyrir tímabilið. Nú er bara að vona að gott gengi haldi áfram og við festum okkur í sessi í deildinni.

Nýr utanríkisráðherra ætlar ekki að sjá um varnarmál. Það er skemmtilegt í ljósi þess að síðustu misserin hefur embætti utanríkisráðherra snúist nær alfarið um varnarmál. Það ætti því að verða náðugt hjá frú Valgerði ef frá eru taldar annir vegna kokteilboða um víða veröld. Greyið Geir mun hins vegar fá að vinna fyrir kaupinu sínu.

Á morgun stefni ég á tónleika með Roger Waters. Um hann veit ég fátt og hef ekki hlustað mikið á Pink Floyd í gegnum tíðina. Þetta ætti samt að verða ágætis skemmtun. Í kjölfarið verður brunað í vinnuna þar sem síðasta vaktin í törninni verður staðin.

Í dag réðst að mér strípalingur og togaði í hárið á mér. Hann færði sig svo upp á skaptið og sleikti mig í framan milli þess sem hann hló dátt. Já, sonur minn er sérstakur karakter eins og hann á kyn til.


Posted at 03:54 am by olinjall
Biscan er bestur, eða hvað?

Sunday, June 11, 2006
Raunir næturfréttamannsins

Þá er klukkan farin að ganga fimm á mínum þriðja degi á næturvaktinni. Ég sit hér ásamt Kristófer Svavarssyni sem er minn lærifaðir í leyndardómum næturinnar hér í Efstaleitinu. Það er skemmst frá því að segja að ég er alveg drauglasinn og líður hreint ekkert vel. En fjórir tímar eftir og þrír lesnir tímar. Harkan sex.

Hér mun ég eyða sumrinu, aðra hverja viku. Á nóttunni eru vanalega tveir menn í húsinu, húsvörðurinn og næturfréttamaðurinn. Félagslega því ekki besta starfið en það hefur marga aðra kosti og þetta leggst vel í mig. Verði einhver andvaka er því tilvalið að kveikja á útvarpinu og athuga hvort ómþýð rödd mín getur ekki stytt mönnum stundir.

5 leikir eru búnir á HM. Ég hef horft á 23 mínútur í beinni útsendingu. Það er minna en oftast áður. Ég sé ekki fram á að horfa mikið á keppnina, einn og einn leik þegar vel liggur á mér. Það er ömurlegt að keppnin skuli vera á Sýn, enn ömurlegra að hundingjarnir á skjánum skuli loka fyrir þær erlendu stöðvar sem sýna frá leikjunum.

Leiknismenn mæta Stjörnunni í Garðabæ annað kvöld. Mínir menn hafa farið vel af stað í 1.deild og tekið 7 stig af 12 mögulegum. Náist stig í hús á morgun verð ég bjartsýnn á sumarið. 15-16 stig ættu að duga til að halda okkur uppi þar sem einungis eitt lið fellur, það væri gott að vera kominn með helming þess fjölda eftir 5 umferðir.


Posted at 05:14 am by olinjall
Biscan er bestur, eða hvað?

Friday, May 12, 2006
bömmer

Litli kúturinn minn er í Svíþjóð núna og kemur ekki heim fyrr en á sunnudag. Ég er eitthvað hálf ómögulegur án hans.

Eins gott að Liverpool reddi helginni með því að vinna bikarinn.


Posted at 04:24 pm by olinjall
já, hann er bestur (3)

Sunday, April 23, 2006
Hitt og þetta smávægilegt

Þá er krikkettímabilið byrjað í Englandi og Durham hóf leik á sigri gegn Kent og það á útivelli. Ekki nóg með að þeir hafi sigrað Kent heldur rúlluðuðu þeir þessu upp og unnu með innings og 50 hlaupum. Það sem gerir þennan sigur svona merkilegan er einna helst það hversu marga leikmenn vantaði í lið Durham. Landsliðstríóið enska, Harmison, Collingwood og Plunkett voru fjarri góðu gamni og þá vantaði annan Ástralann okkar, hinn kynngimagnaða Mick Lewis. Þá var verpillinn Davies meiddur og munar um minna en sá drengur hefur tekið um 100 wicket á síðustu tveimur tímabilum.  Í fjarveru þessara lykilmanna stóðu minni spámenn upp og stóðu sig vel, menn á borð við Muchall, Mustard, Onions og Pratt. Já, þetta verður gott sumar, ég finn það á mér.

Á betsson.com sá ég um daginn að hægt er að veðja á hm í cricket sem verður næsta vetur. Er alvarlega að spá í að leggja undir á Indverja en ég er tel góðar líkur á þeirra sigri. Stuðullinn er 7 sem er náttúrulega ansi gott fyrir líkleg úrslit. Ástralir voru með stuðulinn 2,75 og þykja líklegastir. Ég tel þó sigur þeirra ekki gefinn þar sem lykilmenn eru farnir að reskjast. Mike Hussey er þó klárlega besti kylfill í heimi um þessar mundir.

Þegar þessi orð eru skrifuð er innan við vika eftir af kennslu í Verzló. Ég er ægilega kátur með það að sumarið sé að koma. Finn á mér að þetta verður gott sumar.

Liverpool er komið í bikarúrslitinn. Á ég að slá öllu upp í kæruleysi og fara á leikinn. Djöfull væri ég til í það.


Posted at 04:45 pm by olinjall
já, hann er bestur (1)

Previous Page

Next Page