Entry: Kýrhausinn Thursday, July 13, 2006



Hingað hringdi maður áðan og var ekki sáttur við að þau væru aftur byrjuð að stela frá sér. Þau hefðu gert það áður og væru byrjuð aftur. Að lokum sagði hann að honum hefði þótt nauðsynlegt að koma þessu áleiðis og bauð góða nótt. Ég fékk engar frekari upplýsingar um málið. Kannski "þau" séu sama liðið og gerði nágrannakonu mína það tryllta um daginn að hún galaði "þjófar, morðingjar" úti á stigagangi um miðja nótt.

Helvítis sjálfvirki spilaralistinn er bilaður hérna á rúv í nótt. Mér tekst ekki að koma tölvudraslinu í gang og verð því að leika plötusnúð í hjáverkum. Fann alveg yndislegan disk sem meðal annars innihélt Mandy með Barry Manilow. Lét síðan diskinn rúlla. Ég held að það styttist í annað hvort Herbert Guðmundsson eða Roxette. Allavega eitthvað eðalpopp.

Sonur minn kúkaði í baðið í kvöld. Það er voða sniðugt að hans mati en sama leik lék hann í gær. Þá var ég einn heima og voða panic þegar veiða þurfti strák upp úr íkúkuðu vatninu. Það tókst reyndar ágætlega. Þreif hann aðeins og þerraði og lét hann á gólfið meðan ég veiddi kúkinn úr baðinu og þreif baðendur. Á meðan skeit Valur á gólfmottuna á baðinu. Þá var mér ekki skemmt.

Af Val er annars að frétta að hann fékkst til að borða kjöt í kvöld. Grillað svínakjöt með remúlaði. Já, hljómar vissulega ekki vel en remúlaðið var neyðarúrræði. Og meðan það virkar skal það brúkað. Ætli það verði ekki fiskur með remúlaði á morgun í kvöldmatinn.

Leiknir vann góðan sigur á Fjölni á mánudag. Ég var á vellinum og skemmti mér konunglega.  Pétur Svans er nú markahæsti maður 1.deildar með 6 mörk í 8 leikjum. Ekki amalegt hjá kantmanni.

 

   3 comments

Name
July 20, 2006   09:59 AM PDT
 
Það skal tekið fram að hann hefur fengið oftar remúlaði en í þetta eina skipti. Þetta er samt eina skiptið sem hann kúkaði á mottuna
Agust Flygenring
July 17, 2006   06:37 PM PDT
 
Getur nokkud verid a svinkjot med remuladi hafi eitthvad med astand badmottunar ad gera ;)
Hjördís
July 15, 2006   09:26 PM PDT
 
hahaha kúkur út um allt :) hvernig datt ykkur í hug að nota remúlaði?

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments