Entry: Hann gengur víst Saturday, July 29, 2006



Sonur minn tók þá pólitísku ákvörðun í gær að hann væri aftur byrjaður að ganga án þess að halda sér í. Merkilegur náungi. Annars er allt gott af honum að frétta og mér sýnist hann vera að fitna. Held að það sé matarræðinu hjá múttu að þakka en gemlingurinn hefur dvalið að mestu hjá ömmu sinni og afa síðustu vikuna. Einu fréttirnar sem ég fæ af honum eru að hann sé að froðsa í kleinum og kanilsnúðum.

Leiknismenn fengu stig á Ólafsvík í kvöld. Það er nú kærkominn tilbreyting eftir endalausa tapleiki að undanförnu. Jakob Spangsberg er snúinn aftur í holtið breiða og því má búast við að liðið nái að innbyrða nokkur stig á næstunni. Okkur vantar 4-6 stig til að tryggja okkur í deildinni. Fjandinn hafi það ef 6 leikir duga ekki til þess. Við erum með alltof gott lið til að vera nálægt fallsætinu.

Hesturinn er farinn frá United til Madrid. Ég held að Ferguson sé orðinn gersamlega geggjaður. Merkheppnasta húsdýr heims þessi Hollendingur. Þetta er ámóta vitleysa og þegar Houllierffíflið seldi Fowler á sínum tíma.

   1 comments

Mútta
July 30, 2006   05:50 PM PDT
 
Bíddu - bíddu - hvað með allar remúlaði- kokteil - og hamborgarasósumáltíðirnar sem foreldrarnir hafa verið að dæla í drenginn undanfarnar vikur?

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments