|
Fyrir nokkrum dögum las ég, hlustaði og sá fréttir um eldflaugar Hizbollah á nokkrum íslenskum miðlum. Allir voru þeir uppfullir af því að Ísraelar hefðu grandað einni langdrægri, (gott ef hún var ekki frá Íran svona til að undirstrika hvað hún var vond). Með slíkum skrifum undirstrikuðu fréttamenn fávisku sína á eldflaugamálum. Allavega þætti mér fróðlegt að sjá Hizbollahmenn burðast með langdræga eldflaug á bakinu eða bauka við hana í húsasundi í Beirút. Fyrir þá sem ekki skilja málið má til gamans geta að nýjasta langdræga eldflaug norður Kóreumanna er 36 metrar á lengd og eitthvað um 80 tonn á þyngd. Í vikunni heyrði ég frétt um hinn áttræða Fidel Castro. Allir eiga að vita að kallinn er 79 ára. Leiknir heldur áfram að tapa leikjum, nú gegn KA. Við höfum unnið einn leik af síðustu 8 í deild. Það er ekki góð tölfræði. Á sama tíma sendum við frá okkur góða leikmenn og notum lélega leikmenn í staðinn. Það er ofar mínum skilningi. Pensilínið mitt er að þrusuvirka, ég get talað án áreynslu aftur. Á móti hef ég ekki tekið ofnæmistöflurnar í tvo daga og er strax kominn með hor á ný. |
| Björn æ og Ó. October 7, 2006 01:51 AM PDT HALLÓ HALLÓ HALLÓ HVAR er Óli?!? | ||
| Leave a Comment: |