Fowler er GUÐ
Ég er.....
      <description>...fluttur á olinjall.blog.is</description>
Um heimsku
      <description>Fyrir nokkrum dögum las ég, hlustaði og sá fréttir um eldflaugar Hizbollah á nokkrum íslenskum miðlum. Allir voru þeir uppfullir af því að Ísraelar hefðu grandað einni langdrægri, (gott ef hún var ekki frá Íran svona til að undirstrika hvað hún var vond). Með slíkum skrifum undirstrikuðu fréttamenn fávisku sína á eldflaugamálum. Allavega þætti mér fróðlegt að sjá Hizbollahmenn burðast með langdræga eldflaug á bakinu eða bauka við hana í húsasundi í Beirút. Fyrir þá sem ekki skilja málið má til gamans geta að nýjasta langdræga eldflaug norður Kóreumanna er 36 metrar á lengd og eitthvað um 80... (more)</description>
Hann gengur víst
      <description>Sonur minn tók þá pólitísku ákvörðun í gær að hann væri aftur byrjaður að ganga án þess að halda sér í. Merkilegur náungi. Annars er allt gott af honum að frétta og mér sýnist hann vera að fitna. Held að það sé matarræðinu hjá múttu að þakka en gemlingurinn hefur dvalið að mestu hjá ömmu sinni og afa síðustu vikuna. Einu fréttirnar sem ég fæ af honum eru að hann sé að froðsa í kleinum og kanilsnúðum.
Leiknismenn fengu stig á Ólafsvík í kvöld. Það er nú kærkominn tilbreyting eftir endalausa tapleiki að undanförnu. Jakob Spangsberg er snúinn aftur í holtið breiða og því má búast við að liðið... (more)</description>
nei, hann gengur ekki
      <description>Eftir afrek laugardagsins, þar sem sonur minn gekk einn og óstuddur um gólfin á Kapló tók hann þá meðvituðu og upplýstu ákvörðun að heimskulegt væri að labba án þess að halda sér í á meðan.  Blessunarlega á ég göngutúrinn góða á vídeó þannig að ég get sannað mál mitt um gönguafrek sonarins.
Ríkisskattstjóri gefur okkur hjónaleysunum pakka um mánaðarmótin. Ekki er hann þó voðalega hár. Kennaralaunin eru víst svo há að barnabætur eru skertar eins mikið og leyfilegt er að mér sýnist. Augljóslega verður Valur því að borða mikið af núðlum úr Bónus næsta árið.</description>
Hann gengur
      <description>já, sonurinn gengur og það ekki 10 mánaða gamall.</description>
Lélegasti fréttatími sögunnar
      <description>Ég held að sjö tíminn í morgun sé verst lesni tími á ferli mínum sem næturfréttamaður. Ég tafsaði á öðru hverju orði. úffpúff...</description>
Blogg fyrir Sunnu
      <description>Sunna heimtaði að ég bloggaði hér í nótt. Nú hef ég setið fyrir framan skjáinn í lengri tíma og dettur ekkert í hug til að segja. 
En ég bloggaði þó allavega.</description>
Kýrhausinn
      <description>Hingað hringdi maður áðan og var ekki sáttur við að þau væru aftur byrjuð að stela frá sér. Þau hefðu gert það áður og væru byrjuð aftur. Að lokum sagði hann að honum hefði þótt nauðsynlegt að koma þessu áleiðis og bauð góða nótt. Ég fékk engar frekari upplýsingar um málið. Kannski "þau" séu sama liðið og gerði nágrannakonu mína það tryllta um daginn að hún galaði "þjófar, morðingjar" úti á stigagangi um miðja nótt. 
Helvítis sjálfvirki spilaralistinn er bilaður hérna á rúv í nótt. Mér tekst ekki að koma tölvudraslinu í gang og verð því að leika plötusnúð í hjáverkum. Fann alveg yndislegan... (more)</description>
Hægrislagsíða Njallans
      <description>Ég er kominn með hægrislagsíðu, áttaði mig á þessu bara rétt áðan. En í hverju skyldi þetta nú felast. Jú, kvaki, það er gera svona andahljóð með því að fylla kinnina af lofti og setja smá þrýsting á hana og hleypa því svo út þannig að maður hljómar eins og önd. Þetta get ég bara með hægri kinninni. En eins og þetta sé ekki nóg þá var ég áðan að vinda upp á tunguna á mér. Ég get bara gert það til hægri. Þetta er hrikalegt ástand, kannski það þurfi að senda mig í endurhæfingu eða iðjuþjálfun.</description>
Um skemmtilegt orðalag
Isabelle Dinoire, þrjátíu og átta ára gömul frönsk kona varð fyrsti andlitsþegi heims í lok nóvember en hún missti andlitið þegar hundur hennar réðst á hana í svefni. (úr fréttum ríkisútvarpsins, 4.7.06 kl. 5)
Já, íslenskan er skemmtilegt mál.</description>